1. |
Ég er að dansa
03:28
|
|||
Við klæðumst perlum.
Þù þræðir á mig skó.
Ég vil sjá þig í silkihöfuðkúpukjól.
Við erum fullvaxin fiðrildi.
Ég þig dái - götuteiknarar þrá að teikna mynd af þér.
Við deilum lítilli stund og þreytum örlítið eyrun.
Þú kenndir mér að stýra skrefunum skakkt.
Við stígum spor inn í djúpan dynjandi þykkan takt.
Hér virðist ekki skipta neinu máli á hvaða tungumáli
ég er að dansa.
Hjartastingur.
Nóttin færir sig nær og nær.
Ég mála á þig glingur,
gleraugu, veiðihár og gylltar klær.
Hringinn í kringum þig
dansa þrautakóngar, geimverur, hjartagosar, gínur og ég.
Við deilum lítilli stund og þreytum örlítið eyrun.
Þú kenndir mér að stýra skrefunum skakkt.
Við stígum spor inn í djúpan dynjandi þykkan takt.
Hér virðist ekki skipta neinu máli á hvaða tungumáli
ég er að dansa.
Við rekumst á.
Við stígum spor inn í djúpan dynjandi þykkan takt.
Þú stýrir mér framhjá.
Við stígum spor inn í djúpan dynjandi þykkan takt.
Við deilum lítilli stund og þreytum örlítið eyrun.
Þú kenndir mér að stýra skrefunum skakkt.
Við stígum spor inn í djúpan dynjandi þykkan takt.
Hér virðist ekki skipta neinu máli á hvaða tungumáli
ég er að dansa.
|
If you like Jón Þór, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp